Fjölás ehf er framsækin verkfræðistofa sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum góða þjónustu þar sem persónuleg samskipti eru höfð í fyrirrúmi. Viðskiptavinum hefur fjölgað jafnt og þétt og eru þar á meðal sum af stærstu og öflugustu fyrirtækjum landsins.

Fyrirtæki: Fjölás ehf
Stofndagur: apríl 1997
Starfsmenn: Verk- og tæknifræðingar
Tungumál: Íslenska, Enska, Danska
Sérsvið: Iðntölvustýringar, hússtjórnarkerfi, skjámyndakerfi og hönnun á lág- og smáspennu dreifikerfum

Starfsreynsla

Reynsla af hönnun vegna ýmissa verkefna á sviði nýframkvæmda og endurbygginga fyrir innlenda og erlenda aðila. Reynsla í verkefnastjórnun, framkvæmdaeftirliti svo og rannsóknarverkefnum.

Raun- og hugbúnaður

Iðntölvur frá Hitachi, Siemens, Allen Bradley, General Electric og Alerton.
Hraðastýringar frá Vacon og SEW.
Skjámyndakerfi frá General Electric, Siemens, Citect, Wonderware, FX og Alerton.
Teiknikerfi Acad LT, Intellicad, PCSchematic og AutoCAD Electrical 2007.